Vertu velkomin

ekki gleyma að kommenta gullið mitt

18.01.2008 15:24:57 / sigrunbrynjolfs

flutt

www.123.is/sigrunbrynjolfs

 Allir þanngað ;-)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 20:58:34 / sigrunbrynjolfs

Comeback

Jæja nú skal það gerast....

Núna ætla ég að fara taka mig á í þessum bloggmálum.....

Hvað er nú að frétta frá því síðast

  • Tók skólann í nefið á síðust önn, hef sjaldan staðið mig jafnvel. Vill þá sérstaklega þakka studygrúbbunni minnni fyrir frábæran stuðning og skemmtilegar samverustundir. Og Helga 9.5 það er notla bara fyrir snillinga (sorry smá einkahúmar).
  • Handboltinn hefur soldið farið upp og niður síðan í haust. En við Haukadruslur gefumst ekki upp þótt móti blási og höldum áfram með baráttuna að leiðarljósi.
  • Jólin voru yndisleg. Vann ekki neitt og slappað af fyrir allan penningin.
  • Fékk fullt af fallegum gjöfum frá fullt af frábæru og góðu fólki - Takk fyrir mig.
  • Fékk líka mikið að jólakortum, finnst alveg ótrúlega gaman að fá jólakort.
  • Af því að ég hafði svo mikin tíma um jólin fór ég í það að "hanna" afar fagrar hárspangir og hef aðeins verið að selja þær. Set kannski myndir hér inn við tækifæri;-)
  • Annars er lítið breytt frá því seinast en núna lofa ég reglulegum uppdeitum af lifi mínu störfum ;-)

En djöfull er landsliðið að drulla á sig þeir eru svo lélegir að ég er hætt að fylgjast með og farin að blogga, eitthvað sem ég hef ekki gert síðan í haust. Strákar verðið að taka ykkur á ef þið ætlið að fara í undanúrslit

Jæja ætla að fara vinna í þessum myndamálum. Kannski maður skipti yfir 123.is hef heyrt að það sé mega auðvelt

En yfir og út

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 23:12:57 / sigrunbrynjolfs

Sumarið er liðið

... Og skólinn byrjaður

Annars var þetta sumar mega skemmtó

  • Fór 2x til útlanda Koben og Barcelona
  • Barcelona var snild. Fór með Ragga og chilluðum við og drukkum hvítvín í viku
  • Keypti mér tjald en fór ekki nógu oft í útilegu
  • Var í ógó skemmtilegri vinnu með mjög svo skemmtilegu fólki. Var sumsé að vinna á leikjanámskeiði hjá ÍTR
  • Fór með saumaklúppnum á Reykhóla að heimsækja Gittu yfir helgi. Nokkuð ljóst að sú helgi verður lengi í minnum höfðum og samkomuhúsið í Bjarkarlundi er en að jafna sig og óvíst hvort fleiri gleðskapir verði haldnir þar á næstunni ;-)
  • Var rosa dugleg að æfa en fitnaði samt - já það var mjög skemmtó einmitt ;-)
  • Fór EKKI í sumarpróf
  • Og svo djammaðið maður og gerði ýmsa crazy vitleysu

Það sem tekur við er skólinn, handbolti, vinna og forfallakennsla sem heimilsfræðikennarri framí Október. Allt hressandi hlutir sem ég get ekki beðið eftir að takast á við.

Svo er nú líka ýmislegt leiðinlegt að gerast....Bína vinkona og hennar kæró eru flutt til DK  ásamt Grétu um óákveðin tíma. Síðan er Maja pæja í óða önn að pakka því hún ætlar að yfirgefa mig líka til DK á næstunni. En það góða við þetta er það að þá hef ég enþá meiri ástæðu til að skreppa í eyðsluferð til Koben/Arhus og ég hata það ekki ;-)

 Lifið í lukku en krukku því þá fáið þið hrukkur ;-)


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 08:42:59 / sigrunbrynjolfs

Fjör.is

Stal þessu á síðunni hjá Hörpu ofurdruslu....Alltaf gaman að lesa eitthvað svona um mann þegar maður er í lestrarpásum...Allir að svara í sínum lestrarpásum ;-)
Miðnafnið þitt:
Aldur:
Myndiru segja að ég væri Dirty or Clean:
Þekkjumst við persónulega?
Hver er tilgangurinn með lífinu?
Myndir þú bakka mig upp í slagsmálum?
Myndir þú þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
Besta minningin þín um okkur?
Myndir þú gefa mér nýra?
Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
Getum við hist og bakað köku?
Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
Talaru eða hefuru talað illa um mig?
Finnst þér ég góð manneskja?
Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
Finnst þér ég aðlaðandi?
Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

» 14 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 13:03:02 / sigrunbrynjolfs

Blogg tvö daga í röð....

.... Hvað er eignlega í gangi

Jú það eru próf ;-)

Mér sýnist stefna í að þessi vika muni einkennast að lestri í menning og samfélag. Getur klárlega ekki klikkað að sitja inni og lesa um félagsfræðikenningar og skólasögu á Íslandi þegar vorið er að mæta í öllu sýnu veldi. Maður verður stundum að gera meira en gott þykir eins og móðir mín sagði þegar ég var ung og vældi yfir óréttlæti sem ég mætti á heimili mínu sem krakki, hef reyndar spáð í því seinni tíð hvort þetta hafi verið óréttlæti eða jafnvel bara frekja í mér - já maður spyr sig ;-)

Raggi greyið er óðum að jafna sig eftir barsmíðar gærdagsins og leitar nú logandi ljósi að grimmri konu á grænum passat sem á heima í Álfheimunum - allar ábendingar vel þegnar;-)

Núna er ekki nema 19 dagar í Koben og 25 ára afmælið hennar Nönnu. Nanna reyndar verður ekki á landinu þegar hún á afmæli heldur í Danmörku. Mér finnst því tilvalið að Nanna skelli sér í heimsókn til Koben því ég verð þar og fagni 1/4 aldarafmæli með mér og Maju ;-)

Handboltinn er svo búin í ár og hefjast æfingar aftur eftir hóf. Það verður reyndar ekki alveg setið á rassgatinu þennan tíma stefna er sett á að hittast í 2x í viku í einhverju flippi blak, badminton, fótbolti, körfu allt greinar sem ég hef alla tíð sýnt framá framúrskarandi hæfileika. Annars er ég nú spennt að sjá hvort Erníe Hall taki ekki fram blindrabolta sinn og kenni okkur - Hér með er komin áskorn á þig Erníe.....

En bækurnar KAAAAAAAAALLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLAAAA á mig ;-)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 12:09:47 / sigrunbrynjolfs

Kjaftstopp

Það gerist nú ekki oft ég verð kjaftstopp en í morgun stóð ég á gat.

Raggi fór um 10 ó morgun í bakaríð til að kaupa dýrindis morgunverð og kaffi fyrir mig, ekkert óeðlilegt við það. Þegar hann er á leiðinni í bakaríið og er að keyra í gegnum Álfheimana framhjá blokkunum er kona að fara keyra útaf bílastæðinu. Raggi var nok viss um að hún myndir bíða þar til hann væri búin að keyra framhjá því hún mynda aldrei ná að fara á undan því hann var komin það nálægt. Þessarri konu fanst samt bilið nógu langt og svínar fyrir Ragga. Raggi rétt náði að stoppa og sveigja bílinn þannig að hann myndi ekki klessa á frúnna. Þetta var nú ekki búið því konan stoppar bílinn og rýkur út úr bílnum og Raggi gerir það sama því hann hélt að konan ætlaði að biðjast afsökunar en svo var ekki. Kona byrja að ausa fúkyrðum yfir Ragga og Raggi bara vissi ekki hvað hann ætti að segja því konan svínaði fyrir hann og hann var í 100% rétti. Henni fannst heldur ekki nóg að að drulla yfir hann heldur tekur hún sig til og slær Ragga tvisvar utan undir sest inní bílinin og spólar á stað.

Það liggur ljóst fyrir eftir þessa uppákomu að kurteisi er ábótavant hjá stórum hluta þjóðarinnar.


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 08:33:05 / sigrunbrynjolfs

I am alive

Já vaknaði í morgun og hugsaði "æJJJJJJJJJJJJJJJJJj ég ætla bara blogga í dag"

Það er hins vegar orðið hrikalega langt síðan maður kom með pistil. Mikið búið að gerast á þeim tíma. Ég varð árinu eldri og fékk alveg hrikalega mikið af flottum gjöfum frá öllum frábæra fólkinu sem ég þekki. Það sem stóð samt klárlega uppúr var flugmiðin til Koben en ég er að fara til hennar Maju minnar þann 18 maí. Það er hætt við að það verði mikil "gleðiferð" ef ég þekki okkur stöllur rétt á erlendri grundu. Mér þykir t.d afar líklegt að helstu verslanir og ölstofur munu finna fyrir samveru okkar í Koben þessa örfáu daga. Svo ætla ég líka að heila uppá hana Aldísi og svo má auðvita ekki gleyma að knúsa hann Finnboga:-)

Íslandsmótið er búið og Stjarnan Íslandsmeistara löngu áður en mótið kláraðist. Mín skoðun er nú sú að það verði að vera úrslitakeppni miklu meiri spenna í því. Hins vegar er deildabikarinn eftir og auðvita ætlum við haukadruslar að hirða hann ;-) Fyrsti leikur er í kvöld kl.19.30 á móti Stjörnunni.

Skólin er svo í dópinu. Shitt það er bara ofmikið að gera. Og allt að sjálfsögðu í þessum yndislegu hópverkefnum sem geta gert fallegt heilbrigt fólk geðveikt á svipstundu. Þegar þessi vika er búin taka við próf, fer ekki í nema fimm þetta árið og er ekki búin fyrr en 18.maí. Ég get samt kannski ekki vælt var í tveggja ára pásu eftir stúdent og búin að hafa það ljúft og gott síðasta liðin tvö vor.

HSÍ hófið er svo 16 maí. Ætli maður verði ekki edrú í ár. Það er svosem alltí lagi því ég held að ég skuldi alveg eitt tvö edrú hóf, ekki það að maður hafi tekið eitthvað á því á undanförnum hófum. Nokkuð ljóst að burðarþol borðana á Brodway verður ekki kannað í ár. Það er samt sem áður gleðiefni að ég er komin með kjól og skó fyrir hófið en vantar eitthvað yfir axlirnar hann er nefla soldið ber þar yfir. Og þar sem ég verð hvítari en snjór og með prófljótu dauðans á þessum tíma ætla ég að reyna finna mér eina slíka. Ábendingum vel teki um slár ;-)

Ætla að láta þetta gott heita í bili ætla nú að reyna að fara vakna til lífsins aftur í þessum bloggheimi...

Munið að kommenta gaman að sjá hverjir kíkja en á síðuna.

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 10:22:48 / sigrunbrynjolfs

Voru leidd eins og lömb á leið til slátrunar

...Já þannig komst blaðamaður morgunblaðsins að orði í morgun þegar hann skrifaði um leik okkar við Val. Og klárlega orð að sönnu ;-)

En snilldarleikur í gær og sáu valsstúlkur aldrei til sólar. Við erum því komnar í Höllina 10. mars og ég get ekki beðið enda mitt fyrsta skipti á græna dúkinum ;-)

Annars er ég búin að vera afar slöpp í blogginu. Engin ástæða svosem bara almenn leti en það stendur til bóta ;-)

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 17:48:12 / sigrunbrynjolfs

Spenna.is

Árshátíð hjá Fágellz á laugardag og er ekki hægt að segja annað en að við dömur séu að farast úr spennu - ekki satt stelpur ;-) Dagurinn byrjar uppúr hádeigi í Mecca Spa með nuddi og eftir það er pottur, gufa, rautt og hvítt. Eftir það förum við heim til Sollu að horfa á landsleikinn á meðan ætlar Dóri Sollukæró að elda fyrir okkur eðalkvöldverð, humar í forrétt önd í aðalrétt og frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt -Úff cant wait..Í framhaldi af því bíst ég við taumlausri drykkju langt framá nótt ef ég þekki þennan hóp rétt ;-)

Held ég sleppi því að tjá mig um Gumma í Byrginu, búið að ræða hann aðeins of mikið í bekknum mínum ;-) En læt texta við heitasta lag dagsins í dag fylgja

Gvendur í Byrginu (lag: Gvendur á Eyrinni)
Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.

Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.


Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...


En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...


ÁFRAM ÍSLAND


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:43:57 / sigrunbrynjolfs

Ísland

... Best í heimi

Það er alltaf að sannast betur og betur. Ótrúlegur leikur í gær sigurinn klárlega aldrei í hættu og ekki var verra að þetta voru Frakkar sem voru teknir í ósmurt;-) Nú er bara að vona að strákarnir sýni sama báráttuanda í milliriðlinum.

Óvissuferðin á laugardag var snild frá A-Ö. Allir skemmtu sér konunglega og ölvun var gífurleg, þá er held ég markmiði svona ferðar séð náð.

Ætlaði að koma með rosapistil um Gumma í Byrginu og Kompás þáttinum, ætla aðeins að býða með hann.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 09:46:58 / sigrunbrynjolfs

óle óle óle

Nanan búbú við erum komnar áfram í bikar. Unnum Stjörnuna í gær í hörkuspennó leik þar sem við vorum miklu betri ;-)

Annars var ekkimaður leiksins í gær ein ákveðin stuðningsmaður stjörnunar. Hann var greinilega eitthvað öfundsjúkur út í mátt og megin Hörpu Melsteð og jafnvel var eitthvað ábótavatn uppá þroskastig viðkomandi. Harpa Melsteð fór inn af sinni alkunnusnild og skoraði. Fyndið hvað fólk þarf alltaf að setja útá handboboltastíl hennar en þessi átti án efa komment vetrarins. Viðkomandi tók sig til og kallaði hátt og snjalt svo glummdi í Ásvöllum "Hún legst alltaf í gólfið eins og soðin ýsa". Já mér þætti gaman að vita hvað hann kallar lisðfélaga sína í dag eftir að þær duttu út úr bikar í gær.

En nóg um þetta...

Afar skemmtileg helgi framundan. Partý með Haukadruslum á föstudag og óvissuferð með bekknum á laugardag. Óvissuferðinn byrjar uppúr hádeigi og stendur langt framá nótt. Maður gat nú djammað svona þegar ég var ung og óreynd en núna er ég bara ung ;-)

Saumó í kveld með Víkingsgirls, get ekki beðið langt síðan ég hef hitt þessa snilla. Hlakkar samt mest til að hitta Áslaugu - Áslaug þú klárlega svölust ;-)


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 23:23:14 / sigrunbrynjolfs

Hvað segið þið viljið þið blogg

... Og hér kemur það:-)

Árið 2006 liðið og margt skemmtilegt gerðist nú á því

Janúar - Apríl :Vinna á fullu í Laugarnesskóla. Djammaði nú held ég alveg fullt, það er svona þegar maður er ekki í skóla og er að vinna og er ekki á föstu þá er lítið annað hægt að gera um helgar en að djamma. Handboltinn var að sjálfsögðu alveg á crasy hraða þarna. Get reyndar ekki sagt að við Víkingsdömur náðum einhverjum crasy árangri þetta tímabilið en það eru nú svosem margar ástæður fyrir því sem skipta ekki máli í dag. Og svo átti ég afmæli apríl alltaf gaman að eldast ;-)

Maí-Ágúst: Byrjaði í Boot camp með henni Nönnu pönnu án efa ein sú skemmtilegast hreyfing ever fyrir utan handbolta ;-) Hætti í Laugarnesskóla en fór nú samt með þeim í "námsferð" til Englands í byrjun júni og við erum að tala um frábæra ferð enda eru þetta allt hreinræktaðir snillingar sem ég vann með. Vann í sumar á leikjanámskeiði hjá ÍTR crazy stuð. Þar var einn gaur svo sjúklega skotin í mér að við ákvaðum bara að byrja saman og erum en saman;-) Fór til Tyrklands í 3 vikur með Nönnu og Helgu. Geggjuð ferð sem verður lengi í minnum höf, held að ég hafi aldrei hlegið svona mikið á ævinni þetta var svo gaman. Eftir heimkomu hófust æfingar á fullu og nú voru þær ekki í Fossvoginum heldur í Hafnafirði. Já kvennalið Víkings var lagt niður svo kerlingin skellti sér í Hauka. Sé alls ekki eftir því frábær klúbbur og geggjað skemmtilegar stelpur:-)

Sept-Des: Í september byrjaði ég svo í Kennó. Kennó er alger snild og fullt af drullufínu fólki. Er með Tinnu haukadruslu í bekk og erum við dömurnar alveg að rústa þessum skóla langgáfaðastar og langskemmtilegastar:-) Tja svo gerðist nú  lítið annað markvert gerði lítið annað á þessum tíma en að skólast, handboltast og svo reyndi maður auðvita að sinna aðeins þeim sem eru manni kærastir. Og það sem meira er djamm var í algeru lágmarki á þessum tíma. Jólin voru svo alveg frábær og fékk ég alveg fullt fallegt í jólagjöf...

En shitt hvað þetta er nú leiðinlegt blogg, en læt það hanga inni ;-)

Framundan er svo bikarleikur í 8-liða á morgun við Stjörnuna. Eigum harma að hefna frá því á laugardag og kemur ekkert annað til greina en að klára þetta;-)

Á laugardag er svo óvissuferð með bekknum. Sem fyrr veit ég allt um ferðina þar sem ég er að skipuleggja hana. Verð að fara hætta þessu held að ég hafi bara aldrei farið í óvissuferð .....

En góða nótt ;-)


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 16:59:50 / sigrunbrynjolfs

... Það er allt breytt vegna þín

... Þú komst með jólin til mín til mín til mín

Jæja þá er þessi blessaða geðveiki búin og bara niðurstaðan úr henni eftir, verður spennó að sjá hvernig gekk..

Er semsagt að vinna um jólin á Frístundaheimilinu í Laugarnesskóla (Laugaseli). Ofsa gaman og mikið fjör að hitta þessa krakkasnúllur aftur.

Fór á Holyday í í gær. Og mæli hiklaust með henni ekta svona "feel good" movíe rétt fyrir jólin og að sjálfsögðu endar hún ofsa vel eins og allar Amerískar vælumyndir ;-) Og Jude Law eru þið ekki að grínast það á klárlega að banna myndir með honum innan átján því kynþokkinn gjörsamlega lekur af honum;-)


Er búin að redda öllum jólagjöfum svo núna er bara eitthvað stúss eftir. Útskrift á morgun hjá Bínu og útrskiftarpartý á föstudag, ætli maður mæti ekki að teigi nokkra öllarra. En ekkert sterkara en það er hætt að drekka drykki yfir 15% í alcahól, búin að komast af því að það er mannskemmandi að drekka vín yfir það prósentusig og hananú;-)

Get svo ekki beðið eftir Þorláksmessu elska þennan dag. Smá stúss og vesen yfir daginn og skata um kvöldið. Mér finnst jólin komin þegar maður situr heima með fjölskyldunni á Þorlák borðar skötu og hlustar á jólakveðjurnar á gömlu gufunni, veit ekki hvað það er en það er bara eitthvað svo yfirnáttúrulega hátíðlegt við þetta móment. Svo um kvöldið töltir maður auðvita Laugarveginn. Veit reyndar ekki hvað verður um þann dag í ár. Í fyrsta lagi er spá aftakaveðri og síðan er hún Helga mín að vinna, en ég hún og Þóra höfum alltaf rölt saman og endað í köku og kakó á Lækjabrekkur. En ég og Þóra röltum þetta bara í staðin og aldrei að vita nema við bjóðum tveim íturvösknum karlmönnum með okkur...

Að lokum...

....Verið góð hvort við annað ;--)


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 13:59:35 / sigrunbrynjolfs

próf

Prófin fara að verða búin

Þá kem ég með eitt hrikalegt blogg

Ble


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 08:53:03 / sigrunbrynjolfs

Eitt af fimm búið

Jæja maður mjakast hægt og þétt í gegnum þessa próftörn núna eru bara þrjú próf eftir og eitt verkefni. Fyrsta prófið var í gær mér gekk nú ekki alveg eins og ég hefði vonast til svona miða við hvað ég var búin að læra mikið. En það þýðir víst ekki að gráta Björn bónda heldur verður maður að safna kröftum og halda áfram að læra - Missta ekki gaman ;-)

Annars gerist nú lítið annað en að læra og fara æfinga þessa dagana. Skellti mér reyndar í sund eftir æfingu í gær með Ernu og Ernu. Það var hin besta ferð enda þær nöfnur ótrúlega skemmtilegir sundfélagar - Misst gaman í sundi ;-)

Er svo að fara núna í hádeiginu með pabba í jólahangikjöt niður í Þrótti. Eitthvað árlegt dæmi hjá þeim. Ég ætla skella mér með gamla nauðsynlegt að fá góða næringu í prófunum. En hvað er samt málið með matarlyst og próf. Það er tvö ár síðan ég var í prófum og ég var alveg búin að gleyma hvað matarlyst og nammilöngun eykst á þessum tíma. Shitt ég er bara í shokki yfir því hvað ég er búin að borða mikið undanfarna viku það stefnir allt í að maður verði að "lose kilos" í janúar ;-)

Annars vil ég benda ykkur á þvílíka snilld. Pabbi gaf mér í fyrra svona sprey til að spreyja á rúður þegar það er hrím á þeim. Þetta er alger snilld. Eins og t.d í morgun var sjúklega kalt og maður ekki alveg að nenna skafa í kuldanum. En þá tók mín bara spreyið og spreyjaði létt yfirsetti rúðuþurrkurnar í gang og lagði á stað. Mæli með að allir fái sér svona veit ekki hvar þetta fæst en skal komast af því ;-)

En farin að læra...


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Myndir 2006
Sætu börnin